14 september 2005

Vinnuskólastarfið í september.

-
Starfsfólki Vinnuskólans hefur fækkað jafnt á þétt undanfarnar vikur enda eru allir nemendur skólans fyrir nokkru sestir á hefðbundinn skólabekk. Nokkrir starfsmenn eru þó enn að störfum s.s. sláttumenn og flokkstjórar, ekki veitir heldur af því gróður heldur áfram að vaxa og verkefnin er næg hvert sem litið er.
-
Skógarhögg á Reykjatanga í húnverskri haustrigningu. Starfsmenn vinnuskólans þau Harpa, Magnús og Sölvi.

Um þessar mundir er verið að gróðursetja skógarplöntur, hreinsa beð, slá opin svæði og garða hjá eldri borgurum. Þá er einnig verið að sinna nokkrum stórum verkefnum á Hvammstanga s.s. frágangi við bílastæðin á Norðurbraut 13 og jarðvegsframkvæmdum við suðurenda Hvammstangabrautar. Áætlað er að senda fljótlega Fréttabréf Vinnuskólans sumarið 2005 til íbúa þar sem verkefnum sumarsins verða gerð nánari skil.
-

Engin ummæli: