02 júní 2006

Velkomin í Vinnuskólann!

r
Allir sem voru í 9. og 10. bekk byrja 7. júní í Vinnuskólanum en þeir sem voru í 7. og 8. bekk byrja viku seinna, þann 14. júní. Mæting er klukkan 8:30 árdegis í aðalbækistöð okkar Norðurbraut 14, gamla græna timburhúsið. Húsið verður vel merkt þannig að enginn ætti að villast.
Heyskapur sumarið 2005.

Vinnutíminn er frá 8:30 til 12:00 fyrir 7. og 8. bekk en nemendur úr 9. og 10. bekk vinna einnig eftir hádegi frá 13:00 til 16:30. Mundu að koma með öll hugsanleg hlífðarföt og skóbúnað vegna þess að við vitum ekki hvernig viðrar á okkur í sumar. Ekki er þó nauðsynlegt að koma með hanska því Vinnuskólinn útvegar öllum eitt par í byrjun sumars.

Hollt og gott nesti er afar mikilvægt til að geta unnið af krafti við fjölbreytt verkefni. Gos og sælgæti er best að brúka á laugardagskvöldum en bóndabrauð með kjarnmiklu áleggi er heppilegri vinnuskólafæða. Í Vinnuskólahúsinu er aðstaða fyrir þig til að geyma regnföt og þessháttar og einnig kælir fyrir nestið.

Flokkstjórar eru:
Harpa Vilbertsdóttir S: 892-0644
Magnús Atli Pétursson S: 848-5893
Guðlaug Ósk Sigurðardóttir S: 869-4710
g
Mikilvægt er að hafa þetta í huga:
Notkun farsíma er ekki leyfileg nema í vinnutengdum erindum og í kaffitímum.Sjoppu- og búðarferðir ekki leyfðar í kaffitímum.Ekki verður gefið frí þótt það rigni og blási.

Stefnt er að því að kenna og þjálfa vinnubrögð í skógrækt, göngustígagerð, almennri skrúðgarðyrkju, fegrun og snyrtingu, smíðum, málun og mörgu, mörgu fleira. Einnig verður boðið upp á fræðslu af öðrum toga en það mun skýrast betur síðar. Markmið Vinnuskólans er að allir læri góð vinnubrögð og hafi gleði af starfinu.

Hlökkum til að sjá þig!
Umhverfis- og garðyrkjustjóri Húnaþings vestra

Engin ummæli: