10 apríl 2006

Sumarvinna - leiðbeinendur

-
Húnaþing vestra óskar eftir að ráða leiðbeinendur við Vinnuskólann í sumar. Umsækjendur munu starfa með ungu fólki við fjölbreytt verkefni s.s. við uppbyggingu og viðhald grænna svæða í sveitarfélaginu. Æskilegt er að umsækjendur séu orðnir 20 ára.
-
Fundað með nemendum í Bangsatúni sumarið 2005
-
Hæfniskröfur: Reynsla og eða menntun í störfum tengdum ungu fólki, ánægja af útivist og garðyrkju. Létt lund, stundvísi og snyrtimennska. Skriflegri umsókn skal skilað á skrifstofu Húnaþings vestra fyrir 25. apríl næstkomandi. Í umsókninni þarf að koma fram; Almennar upplýsingar, menntun, fyrri störf og annað sem umsækjandi telur viðeigandi. Leiðbeinendur munu vinna 10 til 12 vinnuvikur (júní, júlí, ágúst) en daglegur vinnutími er átta stundir. Upplýsingar um launakjör eru veittar á skrifstofu Húnaþings vestra í síma 455-2400.
-

Engin ummæli: