Veðráttan í Húnaþingi hefur verið nokkuð kuldaleg síðastliðna daga. Fjölmargir hafa tekið þessu kuldatímabili fagnandi og dregið fram rykfallna snjósleða sína meðan aðrir bíða í ofboði eftir komu sumardísarinnar. Hér fyrir neðan er mynd tekin úr einu af þeim fjölmörgu gervitunglum sem sveima yfir sveitarfélagið dag hvern.
-
Þessi vetrarlega mynd af norðvesturlandi var tekin fyrir tveimur dögum af gervitunglinu Terra sem Geimferðastofnun Bandaríkjanna NASA rekur.-
Veðurspáin næstu daga er með þeim hætti að gert er ráð fyrir áframhaldandi frosti, snjókomu eða éli. Fyrir þá sem bíða óþolinmóðir eftir sumrinu má þess geta að nú eru einungis um 19 dagar þar til sumarið gengur formlega í garð. Líklega skellur þó yfir okkur eitt sæmilegt aprílhret áður en runnar laufgast og tún grænka.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli