06 apríl 2006

Gettu betur á Hvammstanga

-
Stuðningslið Menntaskólans á Akureyri, í spurningakeppninni Gettu betur, dvaldi um stund á Hvammstanga í dag á leið sinni til höfuðborgarinnar. Spurningakeppni framhaldsskólanna hefur um árabil verið með vinsælasta sjónvarpsefni á landinu en nú er lokið undanúrslitum og aðeins tvö lið eftir, Menntaskólinn á Akureyri og Verzlunarskóli Íslands.
-
Við félagsheimilið á Hvammstanga.
-
Fjölmargar langferðabifreiðar staðnæmdust við félagsheimilið á Hvammstanga í dag til að hleypa út um 360 svöngum stuðningsmönnum Menntaskólans á Akureyri. Úrslitakeppnin verður í sjónvarpinu í kvöld klukkan 20:00 og það munu margir fylgjast spenntir með þeirri viðureign.
-

Engin ummæli: