21 mars 2006

Ráðstefna um landbúnað og dreifbýli

-
Þriðjudaginn 11. apríl nk. verður haldin ráðstefna um landbúnað í Húnaþingi vestra. Ráðstefnan verður haldin í Félagsheimilinu á Hvammstanga og hefst kl. 10:00. Ráðstefnan er öllum opin og eru íbúar sveitarsfélagsins hvattir til þátttöku.
-
Miðfjarðarréttir í Húnaþingi vestra
-
Á ráðstefnunni verður rætt um stöðu búgreina, afkomu bænda, kúabúskap, sauðfjárbúskap, hrossarækt, ferðaþjónustu, hlunnindi, atvinnumöguleika, landnýtingu, félagskerfi í sveitum, afurðarstöðvar, fjármögnun og margt fl. Ráðstefnuslit verða klukkan 15:40.
-

Engin ummæli: