-
Vinnuhópur frá Landsvirkjun hefur í vikunni unnið við að hreinsa upp rusl og ónýtar girðingar í Hindisvík á Vatnsnesi. Það er Pétur Jónsson hjá Byggðasafninu sem er í forsvari hópsins. Í morgun aðstoðaði Vinnuskólinn starfshóp Landsvirkjunar við að fjarlægja ruslið af svæðinu og áttu nemendur þar góðan stundir í friðsælu umhverfinu.
Pétur Daníelsson verktaki hjálpaði til við að flytja ruslið burt af svæðinu.
Pétur Daníelsson verktaki hjálpaði til við að flytja ruslið burt af svæðinu.-
Náttúrufegurðin er hreint ótrúleg í Hindisvík en fjöldi ferðamanna var þar á ferli í morgun í fallegu veðri. Víkin er í dag líklega þekktust fyrir að vera friðlýst selalátur og þar má flesta daga sjá þessar þjóðsagnakenndu skepnur bera við kletta og sker.
-
Hindisvík var hér áður talin mikil hlunnindajörð en þar var verslunarstaður til ársins 1924. Séra Sigurður Norland, prestur á Tjörn á Vatnsnesi (1923-1955), átti sér þann draum að Hindisvík yrði höfn og verslunarstaður og varði til þess bæði fé og atorku sinni. Draumur hans varð þó ekki að veruleika nema að litlu leiti og nú eru flestar byggingar í víkinni orðnar heldur framlágar og minna aðeins á stóra drauma liðins tíma. En tímarnir breytast og mennirnir með og í dag væru líklega fáir tilbúnir að leggja þessa fallegu vík undir malbik og steinsteypu.
-
Engin ummæli:
Skrifa ummæli