Nú er Unglistarhátíð Húnaþings vestra 2005 formlega lokið og við hæfi að bregða hér upp nokkrum svipmyndum af uppákomum sem áttu sér stað í síðustu viku. Við munum að sjálfsögðu birta fleiri myndar frá hátíðinni eftir því sem þær berast inn.
Opnunaratriði hátíðarinnar var manntafl á Grettisvelli. Þar féllu vígbúnir riddarar á jörðu og mörg peðin þurftu ekki að gera að sárum sínum eftir viðeign við andstæðinga
Hrókurinn er fallinn! Sjúkraliðar sáu um að bera særða af velli
skrúðgarðinum á Hvammstanga gátu gestir og gangandi fengið sér veitingar og baðað sig í sólinni
Slakað á í skrúðgarði Hvammstanga. Þessi ferðalangur virtist ekki almennilega vita í hvaða landshluta hann var staddur en gerði sig heimakominn í garðinum
Syðri-Hvammsá reyndist vanmetin veiðiá. Þessi spænski veiðimaður var stoltur af veiðinni en hann hafði komið sér þægilega fyrir í garðinum
Skrúðgangan undirbúin. Þemað í ár var íslenska kindin enda Húnaþing vestra mikið sauðfjárhérað og íbúar stoltir af arfleið sinni
Andlitsmálun þykir mjög við hæfi þegar svona uppákomur eiga sér stað
Alþjóðlegir straumar blésu um Unglistahátíðina í ár en þátttakendur komu frá um 10 löndum
Vinnuskólabílinn hefur sjaldan litið svona vel út en lyktin af gærunni var ekki til þess fallin að draga fólk að
Ásláttumenn hengu aftan í kindinni og börðu málma og plast af mikilli list til að æsa upp almúgann
Skrúðgangan á leið upp í Kirkjuhvamm fyrir ofan Hvammstanga
Sól og gleði í Kirkjuhvammi
Mikið var um að vera í Hvamminum: tískusýningar, líkamsföðrun, grillelsi, leikir og fleira og fleira. Frábær lokadagur
Engin ummæli:
Skrifa ummæli