29 desember 2004

Staðardagskrá samþykkt í Húnaþingi vestra

Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á 100. fundi sínum sem haldinn var á Gauksmýri 29. desember sl. 1. útgáfu af Staðardagskrá 21 fyrir sveitarfélagið. Þar með hafa 22 íslensk sveitarfélög náð þessum áfanga.



Vinna við gerð Staðardagskrár 21 fyrir Húnaþing vestra hófst árið 1999. Síðustu mánuði hefur sex manna vinnuhópur unnið mjög markvisst að því að ljúka verkinu. Umhverfis- og garðyrkjustjóri hefur leitt það starf og nú hefur sú vinna skilað sér í formlegri samþykkt sveitarstjórnar á langtímaáætlun um sjálfbæra þróun í Húnaþingi vestra.
Fyrsta útgáfa Staðardagskrár 21 fyrir Húnaþing vestra nær til 7 málaflokka. Í hverjum málaflokki um sig hafa verið skilgreind nokkur markmið í anda sjálfbærrar þróunar, á heimasíðu sveitafélagsins er framkvæmdaáætlun þar sem tiltekin eru þau verk sem ljúka á fyrir árslok 2007. Endurskoðuð Staðardagskrá verður lögð fyrir sveitarstjórn í síðasta lagi 1. febrúar 2007.

Engin ummæli: