22 desember 2004

Bréf til Svæðisvinnumiðlunar

Greinargerð vegna sérstakra verkefna í Húnaþingi vestra á vegum svæðisvinnumiðlunar.
-
Mest verður unnið nærri þéttbýlisstöðum í sveitarfélaginu, s.s. við Hvammstanga og Laugarbakka. Þar verður starfað við fjölbreytt átaksverkefn. Í því samhengi má nefna göngustígagerð frá vatnstanknum fyrir austan og ofan Hvammstanga og upp með Syðri-Hvammsánni að tjaldsvæðinu í Kirkjuhvammi.
Á vinnusvæðunum verður einni starfað við að fella og færa til skógarplöntur þar sem of þétt hefur verið plantað. á skógræktarsvæðum, gróðursetningu, plöntuflutning, viðgerð á gönguprílum, vökvun, eitrun, áburðargjöf og fleira störf er tengjast skógrækt, göngustígagerð almennri gróðurumhirðu. Samstarfið milli vinnuhópsins í sumar og Vinnuskólans tókst mjög vel og mörgum verkefnum, sem annars hefðu setið á hakanum, var sinnt. Umfangsmesta verkefni sumarsins var líklega flutningur grenitrjáa úr skógræktarsvæðinu fyrir ofan Kirkjuhvamm, Hvammstanga. Vel tókst til með flutninginn og var mörgum trjám bjargað frá því að verða keðjusög að bráð. Aðalvinnusvæðið var við þéttbýlisstaðina Laugarbakka og Hvammstanga.
Takk fyrir gott samstarf í sumar og gleðilega hátíð. Virðingarfyllst Arnar Birgir Ólafsson umhverfis- og garðyrkjustjóri Húnaþings vestra.

Engin ummæli: