-
Í dag var styttan í Bangsatúni, skrúðgarði Húnaþings, afhjúpuð í annað sinn eftir gagngerar endurbætur. Reyndar átti afhjúpunin að eiga sér stað í gær en vegna gífurlegrar úrkomu, fimm mínútum áður en bæjarstjórinn ætlaði að klippa á borðann, var afhjúpuninni frestað þar til í dag.
-
-
Uppákoman hófst með myndarlegri skrúðgöngu á Hvammstanga. Hér er það meintur bæjarstjóri sem keyrir stomparana
Ferlíki göngunar var eldspúandi dreki. Reyndar spúði hann ekki miklum eldi, en hann var engu að síður glæsilegur
Ungrfrú norðurland vestra veifaði til mannfjöldans
Þá var komið af afhendingunni þar sem bæjarstjórinn hélt ræðu og ungfrú norðurland vestra klippti á borðann
Um leið og glæsileg styttan kom í ljós fuku hundruðir gasblaðra upp í loft og mannfjöldinn tók andköf af gleði
Við tóku rokktónleikar þar sem mörg þekkt húnversk bönd tóku lagið
Alveg eins og í útlöndum, ótrúlega flott
Margt var um manninn í skrúðgarðinum þennan dag enda nóg um að vera og veðrið afbragð
Sumir ákváðu þó að halda sig ofurlítið til hlés
Það má segja að allt hafi farið vel fram þennan dag og veðrið bætti upp fyrir syndir sínar með þvi að vera okkur hliðholt þennan dagspart. Það er bara vonandi að það haldi áfram því að næstu daga verður mikið um að vera í Húnaþingi vestra. Unglistahátíðin verður fram á sunnudag og eru allir hvattir til að kynna sér dagskrá liði vel svo ekkert fari fram hjá.
-
Engin ummæli:
Skrifa ummæli