13 apríl 2004

Unnið á moltusvæði sveitarfélagsins

Gunnar Þovaldsson er búinn að vera vinna hjá okkur undanfarna daga. Við erum að gera moltusvæðið tilbúið fyrir sumarið. Gunnar notar jarðýtuna til að keyra upp og móta jarðvegsmanir í kringum svæðið og með hjálp áhaldahússins voru settar niður, eða upp, merkingar á svæðið til að auðvelda flokkun. Við ætlum að slétta út yfirborðsefnið á moltusvæðið og gera það eins snyrtilegt og hægt er núna.


Engin ummæli: