23 ágúst 2003

Umhverfisviðurkenningar 2003

-
Árlega veitir Húnaþing vestra þeim aðilum viðurkenningu sem þótt hafa verið til fyrirmyndar við fegrun lóða sinna. Nefnd vegna umhverfisviðurkenninga er skipuð af sveitarstjórn og heldur nefndin utan um valið. Veitt eru verðlaun í fyrirtækja- og stofnanalóða, einkalóð og fyrir fallegast bændabýlið. Í nefndinni eru; Árborg Ragnarsdóttir, Hulda Einarsdóttir, Sígríður Hjaltadóttir og Arnar Birgir Ólafsson sem jafnframt er starfsmaður nefndarinnar.
-
Umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2003. Umhverfisviðurkenningar fyrir einkalóðir fengu húseigendur við Hvammstangabraut 29 og 31, þau Hrólfur Egilsson og Guðrún Hauksdóttir og Ágúst Oddsson og Elísabet Einarsdóttir, en þau eiga samliggjandi lóðir. Þá hlaut Heilbrigðisstofnun Hvammstanga, Sjúkrahúsið, viðurkenningu og bændabýlið á Sauðadalsá á Vatnsnesi, en þar eru ábúendur Heimir Ágústsson og Þóra Þormóðsdóttir.

F.v. Arnar Birgir Ólafsson, Guðmundur H. Sigurðsson, Sigurður Eiríksson, Guðrún Hauksdóttir, Elísabet Einarsdóttir, Ágúst Oddsson, Þóra Þormóðsdóttir og Heimir Ágústsson
Sigurður Eiríksson afhendir Guðmundi H. Sigurðssyni teikningar og gögn sem hann átti í fórum sínum frá upphafi ræktunar trjágarðs við Heilbrigðisstofnun Hvt.

Engin ummæli: