17 febrúar 2003

Heimsókn til Garðabæjar

Fór með Arnari Heimi Jónssyni Umhverfis- og garðyrkjustjóra Siglufjarðar í heimsókn til Garðyrkjustjóra Garðabæjar, Erlu Bil. Þar hittum við einnig fyrir Sigurð Hafliðason verkstjóra garðyrkjunar sem og Lindu sem vann með mér hjá Steinþóri Einarssyni skrúgarðyrkjumeistara árið 2000. Hún er nú er nú almennur starfsmaður hjá Garðyrkjustjóra G. og var að teikna gróður á hringtorg þegar okkur bar að garði. Erla Bil og Sigurður fræddu okkur um landupplýsingakerfið þeirra og sýndu okkur hvernig þau notuðu það í daglegu starfi. Sem dæmi má nefna útboð á slætti sem hefur tíðkast hjá Garðabæ síðustu ár og gefið ágæta raun. Þá eru öll grassvæðin skilgreind, staðsett og mæld út, svo að hægt sé að reikna út fermetrafjölda og gera gott vinnukort fyrir verktaka. Einnig fórum við í gegnum almennt skipulagsstarf þeirra, möppuvinnuna ef svo má segja. Þau sýndu okkur Arnar ýmis eyðublöð, myndir af starfinu og hvernig þau skipulögðu upplýsingarnar í möppurnar.

















Í heimsókninni til Garðabæjar var ýmislegt rætt, s.s. um blómakörfur á ljósastaurum og moltuplanið þeirra. Erla Bil þurfti að hitta arkitekta kl. ellefu og því þökkuðum við henni fyrir okkur og fórum í skoðunarferð með Sigurði um Garðabæ. Fyrsti viðkomustaður okkar var, moltuplanið. Þar tókum við myndir og spjölluðum um svæðið. Næst var komið við á moldargeymslustaðnum þeirra, þar sem uppgröftur er safnaður saman og geymdur. Bærin var skoðaður nokkuð nákvæmlega og Sigurður lýsti fyrir okkur skipulaginu. Rætt var nokkuð um hljóðmanir og kom það fram að Erla sem er búfræðingur að ment. Hún pantar alltaf ákveðna tegund af grasfræi í manirnar, en fræið fær hún frá Landgræðslunni.
Við skoðuðum nýja aðstöðu garðyrkjudeildarinnar í Garðabæ. Um er að ræða gamla og mjög illafarna garðyrkjustöð, þar sem mörg gróðurhúsana eru að hruni komin. Þó er þarna stórt gróðurhús sem er í bærilegu ástandi og þar inni eru geymd alls kyns tól og tæki. Hér fyrir ofan eru nokkrar myndir teknar þar.
Endastöð okkar var á Lyngási 18 og þar sýndi Sigurður okkur aðstöðu garðyrkjudeildarinnar. Um hádegisbilið kvöddum við Sigurð og þökkuðum honum kærlega fyrir fræðsluferðina.

Engin ummæli: