18 júlí 2002

Þökulögn undirbúin

Í dag unnu nemendur vinnuskólans að undirbúningi fyrir þökulagningu. Smá rigning fyrir hádegi setti ekki strik í reikninginn því flestir voru ágætlega klæddir enda regnföt staðalbúnaður nemenda og leiðbeinenda vinnuskólans.
....................Í skrúðgarðinum við Félagsheimilið á Hvammstanga.
...................b.Efninu mokað til með malarskóflum og kröfsum.
.......Vegna fjölmennis sá hluti hópsins um að snyrta trjábeð garðsins meðan aðrir börðust við moldina.
Á þessari mynd sést langa beðið við Félagsheimilið sem klippt var niður í vor. Ótal smágreinar hafa sprottið út úr stubbunum og væntanlega verður ekki langt að bíða þar til þétt runnamotta hefur lokað beðinu.
Þennan dag var einnig þökulagt í Kirkjuhvammi, heyhrúgur hreinsaðar, timburhrúga tekin hjá gömlu ræktunarstöðinni, aðalbækistöðin þrifin, fjórir garðar hjá eldriborgurum slegnir, kirkjugarðurinn við Breiðabólsstað slegin, rifs stungið upp í garði á Klapparstíg og þökulagt þar yfir sárið. Sem sagt ágætist dagur.

Engin ummæli: