17 febrúar 2002

Brotnar skjólgirðingar

Fyrir nokkrum árum var lögð mikil vinna í að byggja upp girðingar fyrir norðan og austan Hvammstanga. Hlutverk þeirra var að safna snjónum saman áður en hann skæfi allan niður í efstu hverfin. Girðingarnar áttu einnig að hlífa skjólbeltum, sem voru gróðursett með þeim, fyrstu árin. Í óveðrinu sem skall á 2. febrúar s.l. brotnuðu þessar girðingar flestar niður.
Skjólgirðingar fyrir ofan Hlíðarveg. Hliðarnar eru fallnar niður en flestar uppistöðurnar standa.
Skjólgirðingarnar eru mjög illa farnar eftir óveðrið.
Í kjölfarið á eyðileggingunni voru skjólgirðingarnar fjarlægðar. Reyndar höfðu margar þeirra gert sitt gagn og kominn tími til að skjólbeltin tækju við. Á nokkrum stöðum hafði þó skjólbeltisgróðurinn ekki náð sér á strik og hvergi að sjá plöntustúf, líkt og á myndunum hér fyrir ofan.

Engin ummæli: